ISBN 978-9979-63-082-1 Stefán Sigurkarlsson
Hólmanespistlar (hljóðbók)

Kápumynd og hönnun: Sigurborg Stefánsdóttir.

Lestur höfundar var hljóðritaður hjá Hljóðvinnslunni ehf. í nóvember 2007. Upptökumaður: Gísli Helgason.

Mannlífið í sjávarþorpinu Hólmanesi, með öllum sínum leyndardómum, sorgar- og gleðistundum, er viðfangsefni sagnanna í þessari bók. Hér er brugðið upp myndum úr hundrað og fimmtíu ára sögu þorps sem er ekkert sérstakt þorp, en gæti verið hvaða íslenskt þorp sem er.

Faktorshúsið, þar sem heldra fólkið býr eða hittist, er miðpunktur þorpsins og íbúum þess ótæmandi efni hvers kyns heilabrota. Í því glæsta húsi er nefnilega allt fínt og fágað til að sjá, en það geymir líka sögur sem margar hverjar þola illa dagsbirtu.

Í þessari sögu vinnur Stefán Sigurkarlsson af kankvísi úr íslensku hefðinni sem felst í að segja sögur af undarlegu fólki og atburðum, en um leið er hann að rekja mannlífs-, menningar- og byggingarsögu þorps sem er samgróið hverjum Íslendingi.

„Íslenskar sögur Stefáns Sigurkarlssonar einkennast af frásagnargleði og lýsingum á harmrænum atburðum undir sléttu og felldu yfirborði. Frásagnarstíllinn er hreinn og beinn og býr yfir lágstemmdri kímni. Bókin er auðveld aflestrar, hrífandi og laus við tilgerð.“
May Schack, Politiken 4. sept. 2004.

J.L.Heiberg, helsti bókmenntagagnrýnandi Dana á 19. öld mun hafa sagt um bækur, að ekki skipti máli um hvað væri skrifað, heldur hvernig þær væru skrifaðar. Og samkvæmt þessu, segir greinarhöfundur, eru Hólmanespistlar verulega góð bók.
Kåemer Assmunssen, Fyldepennen 30. ág. 2004.

„Með Hólmanespistlum staðfestir Stefán Sigurkarlsson hversu mikilhæfur rithöfundur hann er. Bók hans er góð lesning og inniheldur til jafns gleðiríkar og tregafullar frásagnir af litríku mannlífi við íslenska sjávarsíðu.“
Jón Özur Snorrason, Morgunblaðið 1995.

"Þetta er fallega skrifuð bók, sem fyrir sakir stílfærni Stefáns galdrar sig inn í lesandann."
Börkur Gunnarsson. Helgarpósturinn 1995

Hólmanespistlar komu fyrst út 1995, og á dönsku 2004 í þýðingu Björns Sigurbjörnssonar.

 

 15% afsláttur nóvember 2007 ~ 4 geisladiskar ~ 5 klst.

  2.117 kr.

Panta Hólmanespistla (hljóðbók) í Netbókabúðinni.

books@ormstunga.is     Sími 561 0055   Fax 552 4650    Upp  Forsíða