| Ágúst Borgþór Sverrisson | |
Verk Ágústs eru: Eftirlýst augnablik, ljóð (með myndum eftir Jón Óskar Sólnes), 1987 Síðasti bíllinn, smásögur, 1988 Í síðasta sinn, smásögur, 1995 Hringstiginn, smásögur, 1999 Sumarið 1970, smásögur 2001 Tvisvar
á ævinni |
Ágúst Borgþór Sverrisson er fæddur á Seltjarnarnesi árið 1962 og býr nú í Vesturbænum. Hann hefur sent frá sér eina ljóðabók og fimm smásagnasöfn. Ágúst er raunsæishöfundur og sögur hans einkennast af knöppum stíl. Texti hans getur þó orðið ljóðrænn og myndríkur. Sögurnar fjalla oft um áráttugjarnt fólk og vanrækt börn. Í þeim ríkir þó ekki eintómt svartnætti en gjarnan bregður höfundur upp myndum af erfiðum og afhjúpandi augnablikum í lífi persóna sinna. Fyrir utan bókarformið hafa sögur Ágústs birst víðsvegar, t.d. í Tímariti Máls og menningar og í Ríkisútvarpinu á Rás 1. Nokkrar sagna hans hafa unnið til verðlauna og ein þeirra, Afraksturinn, birtist í þýska safnritinu Wortlaut Island, sem geymir sögur og ljóð eftir helstu samtímahöfunda okkar. Vorið
2001 hlaut hann fyrstu verðlaun
í smásagnasamkeppni hjá vefgáttinni Strik.is fyrir söguna Hverfa út í
heiminn, en 350 sögur bárust í keppnina. Dómnefndin var einróma í vali
sínu á sigursögunni og í áliti hennar kemur m.a. fram að sagan sé „ekki
einasta ákaflega vel stíluð og uppbyggð, heldur til marks um að höfundurinn
hefur þrauthugsað form smásögunnar og notar möguleika hennar af listfengi
og kunnáttu. Sögumaður rifjar upp bernskuár í skugga bróður sem dó; frásögnin
einkennist af hlýju, mannskilningi og fínlegum húmor.“ Ágúst Borgþór Sverrisson á nokkuð fjölbreyttan starfsferil að baki; starfaði meðal annars sem blaðamaður á Vísi.is þar sem bókmenntir og menningarmál voru helstu verksvið hans. Hann starfar nú á Íslensku auglýsingastofunni sem textasmiður og prófarkalesari. Meðal helstu áhrifavalda sína telur Ágúst ýmsa bandaríska smásagnahöfunda, t.d. Raymond Carver. Þeir íslensku höfundar sem Ágúst hefur helst sótt áhrif til síðustu árin eru hins vegar Indriði G. Þorsteinsson, Ólafur Gunnarsson, Bragi Ólafsson og Gyrðir Elíasson. Ágúst er hamingjusamlega giftur tveggja barna faðir - og hann er bloggari! Sjá líka Bókmenntavef Borgarbókasafns Reykjavíkur.
|
books@ormstunga.is sími 561 0055 fax 552 4650 Forsíða