| Richard Dawkins | |
|
Ljósm. Matthías Ásgeirsson Bækur eftir Richard Dawkins The
Selfish Gene
(1976) |
Richard Dawkins (fæddur 1941 í Nairobi) er breskur atferlisfræðingur, þróunarlíffræðingur og rithöfundur. Árið 1995 varð hann fyrstur til að gegna prófessorsstöðu fyrir „Public Understanding of Science“ við Oxford-háskóla og gegndi henni til 2008. Fyrsta bók hans, The Selfish Gene, vakti heimsathygli þegar hún kom út 1976 og varð metsölubók víða um heim. Í þeirri bók varpar hann nýju ljósi á þróunarkenningu Darwins með framgangi genanna sem orsök og driffjöður þróunarinnar. Bókin telst nú til grundvallarrita þróunarlíffræðinnar. Margar fleiri bækur um þróun lífsins og skyld efni fylgdu í kjölfarið (sjá listann undir myndinni). Mesta athygli – og deilur – vakti The God Delusion sem kom út 2006 en í þeirri bók tekur höfundurinn einarða afstöðu gegn hvers kyns trú á æðri máttarvöld og færir fyrir því sannfærandi rök. Íslensk útgáfa – Ranghugmyndin um guð – í þýðingu Reynis Harðarsonar kom út í september 2010. Vefsetur Dawkins: The Richard Dawkins Foundation for Reason and Science
|
books@ormstunga.is sími 561 0055 Forsíða