André Gide

André Gide
(1869–1951)

André Gide fćddist áriđ 1869, sonur ríkra kalvínista.  Fađir hans var frá Suđur-Frakklandi en móđirin frá Normandí.  Tveir ólíkir pólar og strax ţar er ađ finna rótleysiđ.  Jákvćtt ađ mati Gide, ţví rćtur afmarka og klafbinda einstaklinginn.  Viđ erum ekki langt frá ţemanu um bastarđinn, sem Lafcadio í Kjöllurum Vatíkansins er á vissan hátt bođberi fyrir. 

Eftir námsárin hélt André Gide til Norđur-Afríku, nánar tiltekiđ til Alsír, sem ţá var frönsk nýlenda.  Kominn svo órafjarri uppeldi púrítanskrar móđur sinnar uppgötvar hann í vinjum Sahara áđur óţekktar nautnir og samkynhneigđina. 

Í Afríku hitti Gide Oscar Wilde, sem ţar var á ferđalagi ásamt Lord Douglas.  Ţar međ voru örlög ráđin og holdlaust hjónaband André Gide og frćnku hans, sem var tilraun til ađ lifa hefđbundnu lífi, fćr ţar engu um breytt.

Gide var 44 ára gamall ţegar Kjallarar Vatíkansins komu út.   Ţađ var í fyrsta skipti sem hann fjármagnađi ekki sjálfur útgáfu á verki sínu.  Ţrátt fyrir ţá stađreynd ađ verk Gide vćru útgefin í mjög fáum eintökum naut hann mikillar athygli.  Hann var svartur sauđur frönsku borgarastéttarinnar.  Ţađ var fjarri honum ađ sćkjast eftir virđingu samfélagsins og ađ auki bćtti hann gráu ofan á svart sem virkur hommi og brennandi andstćđingur nýlendustefnunnar.

Á árum seinni heimstyrjaldarinnar fór Gide í sjálfskipađa útlegđ, fyrst til Túnis og síđan til Alsír.  Áriđ 1947 hlaut hann bókmenntaverđlaun Nóbels og fjórum árum síđar er hann allur - áriđ 1951.


books@ormstunga.is    Sími 561 0055  Fax 561 0025   Upp  Forsíđa