| Guðmundur Óskarsson | |
|
|
Að loknum menntaskóla tók við óstöðugt æviskeið þar sem skiptust á tilraunir til að festa rætur í námi og ýmis störf og uppákomur: golfvallarumhirða, starfsmaður á lager, sumardvöl á Spáni, hjólbörusveinn við uppgröft Þjóðminjasafns Íslands í Reykholti og að Hólum í Hjaltadal o.fl. Frá árinu 2004 hefur Guðmundur verið óbreyttur skrifstofumaður hjá Landsbanka Íslands, þeim gamla og nýja, og sinnt ritstörfum á kvöldin. Í febrúar 2003, eftir nokkurra ára fálm og dútl, ákvað hann að láta undan rithneigð sinni. Síðan hafa þrjár bækur komið út: Smáprósasafnið Vaxandi nánd - orðhviður (2007) og skáldsögurnar Hola í lífi fyrrverandi golfara (2008) og Bankster (2009).
|
books@ormstunga.is sími 561 0055 Forsíða