Haraldur Bessason

Haraldur Bessason (f. 1931), fyrrverandi prófessor í Winnipeg og háskólarektor á Akureyri, er ţjóđkunnur fyrir störf sín vestan hafs og austan. Hann var prófessor á Íslendingaslóđum í Kanada í 31 ár og jafnframt eins konar óopinber sendiherra Íslands međal Vestur-Íslendinga.

Hann tók ţá á móti fjölda Íslendinga ađ heiman, stjórnmálaleiđtogum, listamönnum, frćđimönnum, bćndum og öđru ferđafólki, liđsinnti íslenskum stúdentum og greiddi götu vestur-íslenskra stúdenta sem fóru til náms á Íslandi. Ţá var Haraldur í forystu félagslífs og blađaútgáfu vestra; ritstýrđi m.a. Lögbergi-Heimskringlu og Tímariti hins íslenska ţjóđrćknisfélags um árabil. Hann stóđ einnig fyrir umfangsmikilli frćđiritaútgáfu viđ Manitóbaháskóla, svo sem enskri ţýđingu á Grágás og Landnámu. 

Viđ heimkomuna til Íslands varđ Haraldur fyrsti rektor Háskólans á Akureyri og festi ţá stofnun í sessi á átta ára farsćlum rektorsferli. Eftir ađ hann lét af rektorsembćtti kenndi hann um árabil viđ Háskólann á Akureyri en fluttist síđar međ fjölskyldu sinni í Kanada ţar sem hann sinnti skriftum og frćđistörfum af kappi.

Ormstunga gaf út bók hans, Bréf til Brands áriđ 1999 og 2001  afmćlisritiđ Bréf til Haralds til heiđurs Haraldi sjötugum. Greinasafn hans, Guđir og menn kom út áriđ 2009.

Haraldur Bessason lést í Toronto í Kanada 8. apríl 2009.


books@ormstunga.is     sími 561 0055    Forsíđa