| Helgi Ingólfsson | |
![]() |
Helgi Ingólfsson (f. 1957) lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina 1977, prófi í uppeldis- og kennslufræði 1988 og B.A.-prófi í sagnfræði og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 1994. Hann hefur kennt sögu, Íslandssögu jafnt sem mannkynssögu og listasögu, við Menntaskólann í Reykjavík frá 1984 og aðstoðaði við gerð Íslensku alfræðiorðabókarinnar 1988-1990. Fyrsta bók Helga, Letrað í vindinn : samsærið, kom út árið 1994. Sögusviðið er Róm á tímum keisaraveldisins. Fyrir söguna hlaut Helgi Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar sama ár. Ári síðar kom út sjálfstætt framhald fyrri bókarinnar; Letrað í vindinn : þúsund kossar. Eftir þetta sagði Helgi skilið við Rómaveldi sem sögusvið og færði sig yfir í gamansamar og farsakenndar frásagnir úr íslenskum samtíma. Hann hefur nú sent frá sér fjórar slíkar sagnir, Andsælis á auðnuhjólinu (1996), Blá nótt fram í rauða bítið (1997), Þægir strákar (1998) og Lúin bein (2002). Nýjasta bók Helga er Þegar kóngur kom (2009). Fyrir hana fékk hann Blóðdropann 2010, viðurkenningu Hins íslenska glæpafélags. Kvikmyndin Jóhannes með Ladda í aðalhlutverki, sem var frumsýnd 15. október 2009, er gerð eftir sögunni Andsælis á auðnuhjólinu. Eftir Helga liggja einnig smásögur, ljóð og greinar í fagtímaritum. Hann hefur einnig fengist við gerð námsefnis. |
books@ormstunga.is sími 561 0055 Forsíða