Herta Müller |
|
![]() |
|
| Herta
Müller fæddist 1953 í Nitzkydorf í Rúmeníu.
Móðurmál hennar er þýska. Á árunum 1975 til 1976
var hún við nám í háskólanum í Temeswar. Hún
hefur búið í Þýskalandi síðan 1987. Helstu verk hennar eru Der Fuchs war damals schon der Jäger (skáldsaga 1992 gefin út á íslensku 1995 hjá Ormstungu í þýðingu Franz Gíslasonar undir heitinu Ennislokkur einvaldsins), Der Wächter nimmt seinen Kamm (collage úr myndum og textum 1993) og Herztier (skáldsaga 1994). Verk Hertu Müller hafa vakið mikla athygli víða um heim og fært henni viðurkennd bókmenntaverðlaun: Aspekte-Literaturpreis (1984), Ricarda-Huch-Preis (1989), Marie-Luise-Fleißer-Preis (1989), Kranichsteiner Literaturpreis (1991) og Kleist-Preis (1994). Í desember 1995 hlaut hún evrópsku ARISTEION bókmenntaverðlaunin fyrir Herztier. Sagan kom út í enskri þýðingu 1996 undir heitinu The Land of Green Plums og færði höfundi sínum hin rausnarlegu IMPAC-bókmenntaverðlaun sem var úthlutað í Dyflinni á Írlandi í júní 1998. Nóbelsverðlaunin 2009 Herta Müller hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Peter Englund, framkvæmdastjóri sænsku akademíunnar tilkynnti þetta í Stokkhólmi 8. október 2009. Í tilkynningu akademíunnar segir, að Müller hafi dregið upp mynd af landslagi hinna landlausu með einbeitni ljóðsins og hreinskilni hins lausa máls. Fyrsta bók Müller, smásagnasafnið Niederungen, kom út á þýsku í Rúmeníu árið 1982 og sætti ritskoðun rúmenskra stjórnvalda. Árið 1984 var bókin gefin út óritskoðuð í Þýskalandi. Müller og eiginmaður hennar flúðu síðan land árið 1987 af ótta við aðgerður rúmensku leynilögreglunnar. Bókmenntaverðlaunin nema 10 milljónum sænskra króna og verða afhent í Stokkhólmi í desember. |
books@ormstunga.is sími 561 0055 Forsíða