Illugi Jökulsson

Netfangið hjá Illuga er muskat@mmedia.is

Illugi Jökulsson fæddist í Reykjavík 13. apríl 1960, sonur Jóhönnu Kristjónsdóttur og Jökuls Jakobssonar.

Eftir að hafa hætt í sjötta bekk Menntaskólans í Reykjavík hóf hann störf sem blaðamaður vorið 1979 og hefur allar götur síðan unnið við ýmsa fjölmiðla.

Hann er þekktur fyrir beinskeytta þátttöku sína í þjóðfélagsumræðunni en jafnframt hefur þáttur hans, Frjálsar hendur, í Ríkisútvarpinu á Rás 1  notið mikilla vinsælda allt frá fyrsta þættinum árið 1986.

Af verkum Illuga má nefna:

Þekkingarrit:
~ Bara Lennon, ævisaga Johns Lennons (1981)
~ Draumur okkar beggja, saga hljómsveitarinnar Stuðmanna (1983)
~ Íslenskir nasistar (ásamt Hrafni Jökulssyni) (1988)
~ Meistarar skákborðsins, frásagnir af sex íslenskum stórmeisturum (1989)
~ Guðmundur frá Miðdal (1997)
~ Ísland í aldanna rás 1900-1950 (2000)
~ Stjörnumerkjabókin (2000)
~ Ísland í aldanna rás 1951-1975 (2001)

Skáldsögur:
~ Fógetavald (1991)
~ Barnið mitt barnið (1993)

Barnabækur:
~ Platafmælið (1990)
~ Litli skógarbjörninn (1990)
~ Kanínusaga (1995)
~ Silfurkrossinn 1996

Ljóðabækur:
~ Hjartablóð og hörpustrengir (1991)
~ Næturljóð (gefin út í einu eintaki) 1994

Framhaldsleikrit í útvarpi:
~ Frú Regína

Sjónvarpsleikrit fyrir Nemendaleikhúsið:
~ Guð er til, og ástin

Illugi hefur samið fjöldann allan af leikgerðum fyrir útvarp m.a. Sesselju Agnesi eftir Maríu Gripe og Dóttur línudansaranna eftir Nunes Lygia Bojunga. Þá hefur hann þýtt nokkrar bækur, þar á meðal Vörnina eftir Vladimir Nabokov og ævisögu gítarsnillingsins Keiths Richards eftir Victor Bockris.


books@ormstunga.is     sími 561 0055   fax 552 4650    Forsíða