Jóhanna Sveinsdóttir

„Matkrákan“

Helstu verk Jóhönnu Sveinsdóttur eru matreiðslubókin Matur er mannsins megin (1982), Íslenskir elskhugar (1983), viðtöl við íslenska karlmenn, Á besta aldri, bók um breytingaskeið kvenna í samráði við Þuríði Pálsdóttur (1987), ljóðabækurnar Guð og mamma hans (1994) og Spegill undir fjögur augu (1996) og Til vonar og vara, þríleikur fyrir Kaffileikhús Hlaðvarpans (1994). Auk þess hafa birst frumsamin og þýdd ljóð í ýmsum blöðum, tímaritum og sýnisbókum.

Leikrit eftir Jóhönnu, Quasi una fantasia - einþáttungur fyrir karl, konu, píanóleikara og Færeying, var frumsýnt í Kaffileikhúsinu að kvöldi útgáfudags bókarinnar Hratt og bítandi, 15. október 2000. Leikendur eru Þröstur Leó Gunnarsson, Arndís Hrönn Egilsdóttir. Oddný Sturludóttir leikur á píanó og leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir.  Fleira er á dagskránni, m.a. syngur Álfheiður Hanna nýtt lag eftir Erik Mogensen við eitt ljóða Jóhönnu, Natura morente. Á milli atriða snæða gestir rétti sem uppskriftir er að í bókinni.

Jóhanna skrifaði í mörg ár pistla um mat og menningu undir heitinu "Matkrákan", fyrst í Helgarpóstinn og síðan í Morgunblaðið. Af öðrum ritstörfum má nefna skólabókaútgáfur og blaðamennsku, auk pistla fyrir útvarp, þ.á.m. útvarpsþáttaröð (1995), þar sem frönsk matarmenningarsaga er rakin.


books@ormstunga.is     sími 525 0407   fax 525 0408    Forsíða