| Lea Korsgaard | |
![]() |
Lea , fædd 1979, var áður blaðamaður hjá Berlingske Tidende en vinnur nú fyrir Politiken. Hún var við nám í Syddansk Universitet og síðar lagði hún stund á fjölmiðlafélagsfræði við New School for Social Research í New York þaðan sem hún útskrifaðist vorið 2009 með meistarapróf. Hún skrifaði í félagi við samstarfskonu sína, Stéphanie Surrugue, bókina Det store Bogtyveri sem kom út 2005 og fjallar um bókaþjófnaðina sem áttur sér stað árum saman í Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn. Fyrir þá bók fengu þær stöllur blaðamannaverðlaun Berlingske Tidende árið 2005. Lea Korsgaard hefur einnig kennt blaðamennsku á ýmsum námskeiðum í Danmörku, jafnt fyrir byrjendur í faginu sem lengra komna. |
books@ormstunga.is sími 561 0055 Forsíða