Henrik Mortensen
 

 

Henrik Mortensen fæddist árið 1962. Í áranna rás hefur hann ferðast vítt um heim og bleytt flugur sínar hvar sem laxar eða sjóbirtingar bæra ugga. Hann hefur helgað líf sitt sportveiði og eyðir 290 dögum hvers árs með flugustöng í höndum. Reynsla hans og kunnátta í flugukasti og veiðum er víðkunn. Þess hafa þúsundir manna notið á námskeiðum hans víða um lönd.

 

Henrik er nú í fullu starfi sem veiðileiðsögumaður, kastkennari og hönnuður flugustanga og veiðibúnaðar.

 

Í samvinnu við Newsline Video Productions hefur Henrik Mortensen framleitt nokkra DVD-diska um fluguköst og veiðitækni:

 

  • The Perfect Cast

  • Distance and Delicacy

  • Cracking the Code

  • The Scandinavian Speykast


books@ormstunga.is     sími 561 0055   fax 552 4650    Forsíða