Ólafur Haukur Símonarson

Smellið hér
til að skoða heimasíðu Ólafs

Ólafur Haukur Símonarson (f. 1947) ólst upp í Reykjavík. Hann stundaði nám í hönnun, bókmenntum og leikhúsfræðum í Kaupmannahöfn 1965–70, í Frakklandi 1970–71, og síðan aftur í Kaupmannahöfn 1972–74.

 

Ólafur hefur unnið ýmis störf til sjós og lands, hann var dagskrárgerðarmaður hjá Ríkissjónvarpinu 1974–76 og gerði heimildarkvikmyndir um íslenskt þjóðlíf, en frá árinu 1976 hefur hann eingöngu sinnt bókmenntaskrifum og þýðingum.

 

Hann hefur samið fjölda leikrita fyrir svið, útvarp og sjónvarp sem notið hafa mikilla vinsælda. Nefna má Blómarósir, Hafið, Gauragang, Þrek og tár Kennarar óskast og Bjart með köflum.

 

Fyrir utan ljóð og smásögur hefur Ólafur sent frá sér fjölmargar skáldsögur, svo sem Vatn á myllu kölska, Gauragang og Rigningu með köflum.

 

Einnig hefur hann samið og gefið út á hljómplötum fjölda sönglaga sem einkum höfða til ungra hlustenda (Eninga meninga, Hattur og Fattur, Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir).

 

Ólafur Haukur hefur þýtt fjölda bóka, leikrita og kvikmynda.

 

Ólafur Haukur var leikhússtjóri Alþýðuleikhússins árin 1980–82. Hann hefur verið formaður Leikskáldafélags Íslands frá 1986, varaformaður Rithöfundasambands Íslands frá 1994, setið í stjórn STEFs á Íslandi frá 1986, gegnt embætti varaforseta Leikskáldanefndar Alþjóðaleiklistarsambandsins frá 1993 og setið í verkefnavalsnefnd Leiklistarhátíðarinnar í Bonn (Bonner Theater Biennale) árin 1992 og 1994.

Verðlaun og tilnefningar:

  • Þýðingarverðlaun Reykjavíkurborgar 1984.

  • Tilnefning til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 1989.

  • Verðlaun fyrir kvikmyndina Ryð á kvikmyndahátíðinni í Rouen í Frakklandi 1990.

  • Menningarverðlaun DV fyrir leiklist 1993.

  • Bókmenntaviðurkenning Ríkisútvarpsins 1993.

  • Tilnefning til Norrænu leikskáldaverðlaunanna, fyrir leikritið Hafið, 1994.

 

Verk:

Unglingarnir í eldofninum, ljóðabók, 1970, Helgafell.

Andrókles og ljónið (eftir smásögu Guðbergs Bergssonar), leikrit, 1972, Leikhópurinn Andrókles.

Má ég eiga við þig orð, ljóðabók, 1973 og 1976, SÚR.

Blái fíllinn, barnaleikrit, 1973, Leikhópurinn Andrókles.

Dæmalaus ævintýri, smásögur, 1973, SÚR.

Svarta og Rauða bókin, ljóð 1974, SÚR.

Haustsýning '74, ljóðmyndir, 1974, SÚR.

Krakkarnir í Kringlugötu, sjónvarpsleikrit í þremur þáttum fyrir börn, RÚV, 1975.

Eninga meninga, hljómplata, ljóð og lög, 1975, ÁÁ-hljómplötur.

Hattur og Fattur, sjónvarpsleikrit, RÚV, 1975.

Rauði svifnökkvinn, ljóð og myndir, 1975, Mál og menning.

Handrit að fjórum heimildarmyndum fyrir RÚV, 1976.

Kvöldfréttir, hljómplata, ljóð og lög, 1977, Gagn og Gaman.

Vélarbilun í næturgalanum, smásögur, 1977, SÚR.

Vatn á myllu kölska, skáldsaga 1978, Mál og Menning.

Vand på fandens mølle, tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, lögð fram í þýðingu Peters Rasmundsen. Nordisk Kulturfond, 1979.

Hattur og Fattur, hljómplata, ljóð og lög, 1979, Steinar h.f.

Blómarósir, leikrit, 1979, Alþýðuleikhúsið.

Galeiðan, skáldsaga, 1980, Mál og menning.

Grettir, söngleikur,1980, L.R.

Grettir, hljómplata, 1980, SS-hljómplötur.

Almanak jóðvinafélagsins, ljóðsaga, 1981, Mál og menning.

Vík milli vina, skáldsaga, 1983, Mál og Menning.

Hattur og Fattur, barnasaga, 1984, Iðunn.

Milli skinn og hörunds, þríleikur, 1984, Þjóðleikhúsið.

Milli skinns og hörunds, leikrit í bókarformi, Mál og menning 1984.

Unter die Haut, (Milli skinns og hörunds 1. og 2. hluti), leikgerð fyrir útvarp, 1984, WDR, Köln.

Ástin sigrar, leikrit, Leikfélag Húsavíkur 1985 og Leikfélag Reykjavíkur 1985.

Borgarbragur, ljóð á samnefnda hljómplötu og geisladisk, 1985/1988/1994, Steinar h.f.

Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir, leikrit, 1985 Leikfélag Akureyrar, 1986 Alþýðuleikhúsið.

Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir, hljómplata, ljóð og lög, 1986, Hitt leikhúsið.

Í loftinu, hljómplata, ljóð, 1987, Steinar h.f.

Bílaverkstæði Badda, leikrit, 1987–1989 Þjóðleikhúsið.

Líkið í rauða bílnum, skáldsaga, 1987, Sögusteinn.

Sögur úr sarpinum, úrval smásagna,1988, Mál og menning.

Gauragangur, skáldsaga, 1988, Mál og menning.

Hundheppinn, leikrit, 1989, Nemendaleikhús Leiklistarskóla Íslands.

Kjöt, leikrit, 1990, Leikfélag Reykjavíkur.

Kjöt, leikrit í bókarformi, 1990, Menningarsjóður.

Ryð, kvikmyndahandrit; kvikmyndin frumsýnd 1990.

Á köldum klaka, söngleikur, 1991, Leikfélag Reykjavíkur.

Á köldum klaka, geisladiskur, 1991, ljóð, Leikfélag Reykjavíkur.

Meiri gauragangur, skáldsaga, 1991, Forlagið.

Happadrættisvinningurinn, útvarpsleikrit, 1992, RÚV.

Hafið, leikrit, 1992–93, Þjóðleikhúsið.

Hafið, leikrit í bókarformi, 1992, Forlagið.

Stormur strýkur vanga, ævisaga Guðjóns Símonarsonar, 1992, Forlagið.

Tumult, Gauragangur í danskri þýðingu Erik Skyum Hansen, 1992, Amanda forlag.

Gauragangur, leikrit með söngvum byggt á skáldsögunni Gauragangur, 1993–94, Þjóðleikhúsið.

Gauragangur, geisladiskur 1994, Skífan.

Söngvarinn, leikrit 1994, Ríkisútvarpið 1994, Vestur-þýska útvarpið (WDR) 1994, Slóvenska útvarpið 1994.

Þrek og tár leikrit 1994, Þjóðleikhúsið 1995

Þrek og tár, leikrit í bókarformi, 1995, Ormstunga.

Ævintýri á harða diskinum, leikrit fyrir unga leikara, samið að tilmælum NTU, Nordisk teater union, frumsýnt af leikfélagi Mosfellssveitar, 1995. Danmörk 1996.

Kennarar óskast, leikrit, 1996 , Þjóðleikhúsið.

Rigning með köflum, skáldsaga, 1996, Ormstunga.

Meiri gauragangur, leikrit, 1997, Þjóðleikhúsið.

Úr hugarheimi – Sigurður Þórir listmálari, 1998.

 

Sjá meira á heimasíðu Ólafs Hauks.


books@ormstunga.is     sími 561 0055    Upp  Forsíða