Stefán Aðalsteinsson

Stefán Aðalsteinsson fæddist á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal 30. desember 1928. Þar ólst hann upp í hópi tíu systkina við fjárbúskap á víðlendri hálendisjörð. Þar voru hestar mikið notaðir, bæði við aðdrætti til heimilis og við bústörf.

 

Hann stundaði nám í búvísindum við Landbúnaðarháskólann að Ási í Noregi og lauk þaðan cand.agric.-prófi árið 1955. Hann starfaði við Búnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans, síðar Rannsóknastofnun landbúnaðarins, frá 1955 til 1991. Á árunum 1966 til 1968 vann hann við Háskólann í Edinborg, tölfræðideild, að ritgerð um erfðir á sauðalitum og hlaut doktorsnafnbót þaðan vorið 1969.

 

Árin 1991–1996 var hann fyrsti framkvæmdastjóri Norræna genabankans fyrir búfé, á vegum Norðurlandaráðs. Hann var tölfræðiráðgjafi Krabbameinsfélags Íslands og kennari, m.a. við verkfræði- og raunvísindadeild og læknadeild Háskóla Íslands.

 

Stefán ritaði fjölda vísindagreina um litaerfðir í mörgum tegundum búfjár. Hann var meðal þekktustu sérfræðinga í heimi um litaerfðir sauðfjár og hrossa. Hann skrifaði fræðibækur fyrir börn og fullorðna (sjá Íslenski hesturinn - litir og erfðir) og tvær barnabækur. Ennfremur liggur eftir hann fjöldi ritgerða um fræðileg efni og greinar um þjóðfélagsleg efni, í innlendum og erlendum tímaritum og dagblöðum.

 

Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2003 fyrir framlag sitt til erfðafræði og búvísinda og fékk viðurkenningar úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright 2004 auk þess að vera Paul Harris-félagi í Rótaryhreyfingunni. Fyrir ritstörf fékk hann viðurkenningar fyrir framlag til barnamenningar og ýmsar aðrar viðurkenningar fyrir ritstörf, m.a. fengu Blómin okkar og Landnámsmennirnir okkar íslensku barnabókaverðlaunin sem bestu fræðibækur fyrir börn og unglinga 1992 og 1999.

 

Stefán Aðalsteinsson lést 6. nóvember 2009.


books@ormstunga.is     sími 561 0055    Forsíða