Sveinn Einarsson

Gullgríman 2003

Sveinn Einarsson (f. 1934) er löngu þjóðkunnur maður fyrir störf sín í leikhúsi.

Auk þess að hafa verið leikhússtjóri fyrst hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1963-1972 og síðar hjá Þjóðleikhúsinu 1972-1983, hefur hann leikstýrt fjölda leiksýninga og ópera  bæði hérlendis og erlendis.

Sveinn var dagskrárstjóri sjónvarpsins 1989-1993. Formaður stjórnar Listahátíðar í Reykjavík 1998-2000.

Hefur leikstýrt yfir 70 leiksýningum heima og erlendis, m.a. nokkrum frumuppfærslum, óperum, sígildum verkum og nútímaverkum. Einnig hefur hann stjórnað leikritum í sjónvarpi og útvarpi.

Hann hefur gegnt ótal trúnaðarstörfum tengdum menningarmálum heima og erlendis, var m.a. varaforseti Alþjóðaleikhússtofnunarinnar ITI (1979-1981), formaður Leiklistarsambands Íslands (1973-1989), Leikskáldafélags Íslands (1985-1989) og íslensku UNESCO-nefndarinnar síðan 1994.

Sveinn hefur að auki skrifað mörg leikrit og eftir hann hafa komið út margar bækur, bæði fræðibækur og skáldsögur.

Á þeim árum sem hann stjórnaði leikhúsunum vann hann kappsamlega að því að efla íslenska leikritun og gerði það að sínu baráttumáli.

Hinn 16. júní 2003 hlaut Sveinn, fyrstur manna, Gullgrímuna, heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands.

Af verkum Sveins Einarssonar eru þessi helst:

LEIKRIT

 

LEIKGERÐIR

  • Kristnihald undir Jökli eftir Halldór Laxness (1970)
  • Atómstöðin eftir Halldór Laxness. Ásamt Þorsteinni Gunnarssyni (1972)
  • Hús skáldsins eftir Halldór Laxness (1981)
  • Bandamanna saga (1992)
  • Þýðingar á leikritum eftir Henrik Ibsen, Dario Fo, Samuel Beckett, René Obaldia, Kaj Munk, August Strindberg, Molière o.fl.
 

BÆKUR


books@ormstunga.is     sími 561 0055   fax 552 4650    Forsíða