Fyrsta Gullgríman veitt Sveini Einarssyni Gríman - Íslensku leiklistarverðlaunin voru afhent í fyrsta skipti 16. júní 2003 í Þjóðleikhúsinu. Við það tækifæri fékk Sveinn Einarsson Gullgrímuna, heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands, fyrir æviframlag sitt til leiklistar. |
Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, afhendir Sveini Einarssyni Gullgrímuna í
Þjóðleikhúsinu.
|
|
Í greinargerð Leiklistarsambands Íslands segir: „Sveinn var aðeins 28 ára þegar Leikfélag Reykjavíkur réð hann í stöðu leikhússtjóra árið 1963 og varð hann fyrstur til að gegna þeim starfa hjá félaginu. Hann var leikhússtjóri félagsins í Iðnó í níu ár samfleytt og auk þess skólastjóri Leiklistarskóla LR þar til hann var skipaður í embætti Þjóðleikhússtjóra árið 1972, sem hann gegndi í ellefu ár, eða fram á mitt ár 1983.“ „Á 20 ára ferli sem leikhússtjóri tveggja helstu leikhúsa landsins lagði Sveinn m.a. mun meiri rækt við nýjan innlendan leikskáldskap en áður hafði þekkst og breytti þannig áherslum í verkefnavali þessara leikhúsa að trú okkar, bæði leikhúsfólks og almennings, á möguleika íslensks leikskáldskapar jókst til mikilla muna. Önnur mikilvæg áherslubreyting sem varð í leikhússtjóratíð Sveins var að leit eftir erlendum verkefnum beindist í auknum mæli út fyrir hinn þrönga engilsaxneska heim. Í Þjóðleikhússtjóratíð sinni stofnaði Sveinn Íslenska dansflokkinn árið 1973, sat í stjórn flokksins 1973-83 og aftur sem formaður 1992-96. Árið 1973 stofnaði hann einnig Leiklistarsamband Íslands og var formaður þess í 16 ár eða til 1989. Bæði Íslenski dansflokkurinn og Leiklistarsamband Íslands fagna þrjátíu ára afmæli um þessar mundir. Þá var Sveinn formaður Leikskáldafélags Íslands 1985-89. Sem einn af okkar helstu leikstjórum á Sveinn að baki 86 sviðsetningar, þegar allt er talið, á leikritum og óperum, bæði heima og erlendis, m.a. nokkrum frumuppfærslum, sígildum verkum og nútímaverkum, auk þess sem hann hefur átt fjölda leikstjórnarverkefna í útvarpi og sjónvarpi. Sveinn hefur gegnt ótal trúnaðarstörfum tengdum menningarmálum heima og erlendis og starfaði auk þess að menningarmálum fyrir Evrópuráðið. Hann er formaður íslensku UNESCO-nefndarinnar síðan 1994. Á seinasta ári var Sveinn kosinn í aðalstjórn UNESCO.“ Sveinn þakkaði fyrir sig með þessu ljóði: Þér
æskan forðum
ólgaði í
barmi Seinna
varð þér
ljóst að
hálft er hólið Þá
lærist þér að ljúft er starf á vori: Sú
aldna reynsla má aldrei verða byrði
|
books@ormstunga.is Sími 561 0055 Fax 552 4650 Upp Forsíða