|
Jón á Bægisá Ellefta hefti (febrúar 2007) Á þessu ári er þess minnst að öld er liðin frá fæðingu breska skáldjöfursins W.H. Auden (1907-1973) sem mörgum er kunnur hér á landi, ekki síst fyrir tvær Íslandsheimsóknir hans, bókina Letters from Iceland og þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar á ljóðinu „Ferð til Íslands“. Þetta ellefta hefti Jóns á Bægisá er tileinkað minningu Audens. Hér fá ljóðaunnendur stóran og kærkominn skammt af áður óþýddum kvæðum skáldsins auk ítarlegrar umfjöllunar um æviferil þess og skáldskap. Auk þess er hér að finna kafla úr bókinni Letters from Iceland sem ekki hafa áður verið þýddir. Þýðandi og umsjónarmaður alls þessa efnis er Ögmundur Bjarnason læknir og þýðandi. Hann var einn þriggja sigurvegara í ljóðaþýðingakeppni sem haldin var í tengslum við verkefnið Menningarmiðlun í ljóði og verki árið 2001, og birtust hinar verðlaunuðu þýðingar hans á ljóðum þriggja danskra skálda í 8. hefti Jóns á Bægisá. Nú hefur hann semsé tekið að sér að kynna Wystan Hugh Auden fyrir lesendum tímaritsins. Ritnefndinni þykir mikill fengur að þessu framlagi Ögmundar og efast ekki um góðar viðtökur lesenda, enda er það bjargföst trú okkar að Auden hafi aldrei áður fengið jafnviðamikla kynningu hér á landi. Fleiri
en Ögmundur koma við sögu: Sigurður A. Magnússon rithöfundur og þýðandi
á greinina „Blaðamaður í bundnu máli“ þar sem segir af fundi þeirra
Audens í New York árið 1955. Sigurður
hefur einnig þýtt ljóðið „Önnur ferð til Íslands“ sem Auden orti
1964, þegar hann kom hingað í boði íslensku ríkisstjórnarinnar. „Í fylgd með Auden“ heitir grein Ragnars Jóhannessonar cand.mag, skólastjóra, revíuhöfundar og þýðanda (1913-1976). Ragnar var rúmlega tvítugur þegar hann gerðist leiðsögumaður breska skáldsins í fyrri Íslandsferð þess árið 1936. Matthías
Johannessen skáld átti fund með Auden í Reykjavík 1964 og skráði þar
um skemmtilegan samtalsþátt sem birtist fyrst í Morgunblaðinu
í apríl 1964, síðar í M – Samtöl
I og nú hér sem hluti af umfjöllun Jóns
á Bægisá um Auden í tilefni af aldarafmælinu.
Nýtt efni og eldra til heiðurs W.H. Auden, bresku stórskáldi af íslenskum ættum (því hélt hann sjálfur fram um uppruna sinn) er semsé efni Jóns á Bægisá að þessu sinni. |
books@ormstunga.is sími 561 0055 fax 552 4650 forsíða