Úr barnabókinni Thor
eftir
William D. Valgardson:
í íslenskri þýðingu Guðrúnar B. Guðsteinsdóttur.

Myndir eftir Ange Zhang

Thor var í heimsókn hjá afa og ömmu í jólafríinu, en það eina sem hann vildi gera var að horfa á sjónvarpið. Það eina sem hann talaði um við þau var ævintýrin sem hann sá í sjónvarpinu. Hann talaði um uppáhaldshetjurnar sínar og dáðir þeirra.

Afi Thors var fiskimaður. Hann vann við að leggja og draga net í Winnipeg-vatni.

Á föstudagskvöld stundi afi: „Hann Ben sem vinnur hjá mér er veikur. Ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég verð að komast til að vitja um netin.“

„Þú verður bara að ráða einhvern annan,“ sagði amma.

„Það er engan annan að fá. Allir eru annað hvort í burtu eða að vinna.“

„Þá fer Thor bara með þér,“ sagði amma.

Thor langaði ekkert að fara með afa sínum. Laugardagur var hans uppáhaldsdagur. Heima hjá sér horfði hann á teiknimyndir allan daginn, ef mamma hans rak hann ekki út að leika sér. Stundum klæddi hann sig ekki einu sinni.

„Ég er of lítill,“ sagði hann.

„Hann er allt of lítill,“ samsinnti afi. „Hann getur ekki lyft kössum eða dregið net.“

„Hann getur hjálpað til við að leggja netin,“ sagði amma. „Á hans aldri hjálpaði ég pabba mínum.“

„Það er of kalt úti,“ samsinnti afi hans.

Thor leit út um gluggann. Þar sá hann grýlukerti sem voru á stærð við handlegginn á honum.

„Það verður hlýrra á morgun.“ sagði amma. „Hann fer bara í síðar nærbuxur, tvenna sokka, tvennar buxur, tvo nærboli, peysu, jakka, hanska og vettlinga, og vefur svo trefli vel að andlitinu.“

Amma náði í öll fötin, sem Thor þurfti úr fataskápnum hans, og raðaði þeim í stafla.

„Ég missi af teiknimyndunum á morgun,“ kveinaði Thor. „Leðurblökumaðurinn er að fara að bjarga Gotham-borg úr klónum á Spaugaranum.“

„Það eru teiknimyndir á hverjum laugardegi. Þú hefur hvort sem er séð flestar þeirra áður,“ sagði amma. „Jæja, nú er best þú farir að sofa. Við verðum að fara á fætur klukkan sex.“

„Ég sé þessar teiknimyndir aldrei aftur,“ sagði Thor og bjó sig í háttinn.

Forsíða