| ISBN 9979-63-000-0 | William D. Valgardson Stúlkan með Botticelli andlitið í þýðingu Gunnars Gunnarssonar og Hildar Finnsdóttur |
![]() Sagan heitir á frummálinu The Girl with the Botticelli Face og kom fyrst út í Kanada árið 1992. Útlitshönnun
og kápa:
|
„Þú vilt að ég
breyti mér,“ sagði ég. „Hvað er rangt við það að ég sé sá sem ég er? Ég tilheyri verkalýðsstéttinni og þjóðernislegum minnihlutahópi. Það er maðurinn sem þú giftist.“ „Allir breytast. Þú getur breyst og orðið miðstéttarlegri. Aðlagað þig. Hvað er svona dásamlegt við að vera öðruvísi en aðrir?“ Í þessari spennandi sögu segir frá leit manns að ungri þjónustustúlku sem hefur horfið við dularfullar kringumstæður af uppáhaldskaffihúsinu hans. En annað meginþema sögunnar er uppgjör sögumanns við sjálfan sig, hjónaband sitt og líferni öll fullorðinsárin ásamt minningum og minningabrotum sem hægt og bítandi skerpa einkenni sögupersóna og skýra breytni þeirra. Þannig sameinast leitin þrá söguhetjunnar eftir ást, friði og sátt við sjálfan sig. Sagan hefur hlotið einróma lof í Kanada enda er hún í senn bráðfyndin og átakanleg, hjartnæm og skelfileg hárbeitt og nærgöngul krufning á lífi og háttum nútímamanns. Bókin færði höfundi sínum kanadísku Ethel Wilson bókmenntaverðlaunin 1992.
|
| 15% afsláttur | Harðspjöld ~ 220 bls ~ nóv. 1995 ~ 15×23 cm |
|
2.380 kr. |
Skoða Stúlkuna með Botticelli andlitið í Netbókabúðinni. |
books@ormstunga.is Sími 525 0407 Fax 525 0408 Upp Forsíða