ISBN 9979-63-028-0 Bréf til Haralds
Baldur Hafstað og Gísli Sigurðsson höfðu umsjón með útgáfunni.


Þessi stórskemmtilega bók, sem kom út til heiðurs Haraldi Bessasyni sjötugum þann 14. apríl 2001, dregur mjög dám af fjölbreyttri starfsævi Haralds.

Áhugamál vina hans verða ekki felld að neinni einni fræðigrein og bera skrif þeirra þess glöggt vitni. Efnið snertir vesturíslenska menningu og málfar, skagfirskar heimaslóðir afmælisbarnsins, íslenskan landbúnað, sögu, þjóðfræði og bókmenntir, Menntaskólann á Akureyri sem fóstraði Harald á árunum kringum 1950, Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri.

Margir bréfritara, en þeir eru alls 46, rifja upp sameiginlegar stundir með Haraldi forðum daga og gera þar með bókina persónulegri en títt er um heiðursrit af þessu tagi og öllum bréfriturum er það sameiginlegt að skrifa leikandi léttan stíl, enda sumir þjóðkunnir pennar.

Fáein bréfanna frá vinum vestra eru skrifuð á ensku.

Hverjir skrifuðu Bréf til Haralds?

Fróðleikur um Harald Bessason

 

15% afsláttur Harðspjöld ~ 415 bls ~ 14. apríl 2001 ~ 16×23,5 cm
4.037 kr. Skoða Bréf til Haralds í Netbókabúðinni

books@ormstunga.is     Sími 561 0055  Fax 552 4650    Upp  Forsíða