ISBN 978-9979-63-051-7

Einar Már Jónsson
Bréf til Maríu

Stærri mynd

„Þeir sem vilja lesa bækur um hugmyndafræði og láta sannfærast ættu verða sér úti um eintak af nýrri bók Einars Más Jónssonar, Bréf til Maríu

Einar Már er sagnfræðingur og hefur búið í París síðustu fjörutíu ár. Hann er frábær stílisti, góður sögumaður og ekki síðri þrætubókarmaður. Hann virðist eiginlega á móti flestu sem hann hefur orð á í bókinni, nema hugsanlega einhvers konar velferðarkerfi – og hver er svo sem á móti því? Hann skrifar gegn marxisma og þó sérstaklega frjálshyggju. Og hann hatast við formgerðarhyggju og póstmódernisma, sem hann leggur jöfnu. Það er nú meira hvað menn endast til þess rjúka upp yfir þessum hlutum. En hann hefur alveg efni á því: Hann sat fyrirlestra helstu páfa póststrúktúralismans á 7. áratugnum svo sem Foucaults. Hann segir þeir hafi bara bullað og þjáðst af botnlausri athyglisþörf eins og tískuliðið.

Bókin er hinn mesti skemmtilest­ur og raunar sprenghlægileg á köflum. Það er sjaldgæfur eiginleiki á bók um hugmyndasögu en slíkar bækur eru þar að auki fágæti hérlendis.“

Þröstur Helgason,  Lesbók Morgunblaðsins 21. apríl 2007

 

  • Hvert voru helstu ráðamenn Íslands að fara í loftbelg?

  • Hvað teiknaði Sæmundur fróði á kofavegginn í París?

  • Til hvers er þýðillinn notaður?

  • Sköpuðu sund-apar tungumálið?

  • Hvar leynast lendingarpallar fyrir geimverur?

  • Hvaða tónlist hljómar undir dansi í Dimmuborgum?

  • Hverjir sigla á uppistöðulónum virkjana á Austurlandi?

Svör við þessum spurningum fást í þessari áleitnu en jafnframt bráðskemmtilegu bók. 

En höfundurinn veltir líka fyrir sér öðrum spurningum: Er allt sem er mögulegt endilega æskilegt? Eru heimspekistefnur og stjórnmálahreyfingar einberar tískubylgjur? Hvað er þjóð? 

Hann tekur á helstu álitamálum samtíðarinnar og fer á kostum í skarplegri greiningu sinni  og er ómyrkur í máli. Evrópusambandið, menntamanna-marxisminn, frjálshyggjan, alþjóðavæðingin, tæknidýrkunin, póstmódernisminn og formgerðarhyggjan eru meðal þess sem tekið er til skoðunar.

Það er ætíð grunnt á kímninni, en að lestrinum loknum hefur lesandinn samt verið rækilega vakinn til umhugsunar um hvort nútímamaðurinn ætti ekki að staldra við og huga betur að raunverulegri velferð sinni.

Við sögu koma menn eins og Freud og Marx, Althusser, Derrida og Lacan,   Búkharín og Lenín, de Gaulle og Le Pen, Halldór Björn Runólfsson, Sigurður skáld og Þorsteinn! – Og margir fleiri.

Einar Már Jónsson er sagnfræðingur og doktor í miðaldafræðum. Hann kennir við Sorbonne-háskóla í París.

Einar Már spjallar við Egil Helgason í Kiljunni 3. okt. 2007

 TILBOÐ: 15% afsláttur Kilja ~ 350 bls ~ mars 2007 (2. prentun sept. 2007) ~ 12×20 cm ~ Verð: 1.790 kr.

  1.522 kr.

Panta Bréf til Maríu

books@ormstunga.is     Sími 561 0055   Fax 552 4650    Upp  Forsíða