| ISBN 9979-63-045-0 | Baldur
Óskarsson Ekki láir við stein |
„Við
fyrstu kynni er ljóðabókin borg Og að lokum: „Líklega tekur borgin þér opnum örmum.“ Ég man varla eftir skemmtilegra og sterkara upphafsljóði á ljóðabók, mér fannst eins og mér væri tekið opnum örmum og fann strax hvernig bókin fangaði mig - eftir svona upphaf er ekki annað hægt en að lesa sig áfram og sjá hvað gerist, hvort ekki opnist götur og sund. Og sem fyrr olli Baldur mér ekki vonbrigðum, það líf og sá leikur sem heillaði mig þegar ég fyrst las ljóð hans er hér enn til staðar, auk þess sem litagleðin er ríkjandi sem fyrr. Úlfhildur Dagsdóttir
|
Á sumri komanda ...Það er
alltaf gott veður hér útfrá segir Og þegar
ég kem út í hólana situr hann þar á
Það þykir ætíð sæta nokkrum tíðindum þegar Baldur Óskarsson sendir frá sér nýja bók. Þessi þrettánda ljóðabók hans vitnar um orðkynngi, hlýja gamansemi og gleði - meira að segja litagleði. Ungu ljóðskáldin mega vara sig því að Baldur er síungur og kemur alltaf á óvart. Meitluð náttúrukennd og óvenjulegar mannlífsmyndir setja svip á ljóðin - og ósjaldan er Grandinn ekki langt undan. Heillandi bók með 82 frumsömdum og 24 þýddum ljóðum. Sannkallaður hvalreki fyrir alla ljóðaunnendur. Bókin er prentuð í Prentsmiðjunni Gutenberg.
|
| 15% afsláttur | Kilja ~ 128 bls ~ 8. nóvember 2004 ~ 13,4×21,2 cm |
|
1.581 kr. |
Panta |
books@ormstunga.is Sími 561 0055 Forsíða