| ISBN 9979-63-002-7 | Herta Müller Ennislokkur einvaldsins í þýðingu Franz Gíslasonar |
![]() Sagan heitir á frummálinu Der Fuchs war damals schon der Jäger og kom fyrst út í Þýskalandi árið 1992. Soffía Árnadóttir sá um útlit og kápu. |
Myndbrot, óskýr í fyrstu, raða sér saman. Aspirnar eru hnífar sem sníða heitt loftið. Vindurinn verður óttasleginn þegar hann bærir á sér á götum valdsins. Í verksmiðjunum eru græðgi og launungin söm hvort heldur menn barna eða stela. Blaðlúsin í ennislokki einvaldsins læst vera dauð. Andblær óttans vakir í lystigarðinum ... Smám saman birtast drættir mannlífsins í Timisoara um þær mundir sem uppreisnin gegn Ceausescu og valdaklíku hans hófst. Sagan lýsir á ljóðrænan hátt hvernig sekt og sakleysi eru samofin í fórnarlömbum allra alræðisstjórna. Refir og veiðimenn skipta um hlutverk en spurningin er hvort eitthvað hafi gerst ... einn frakki smeygir sér í annan ... |
| Leskafli
Umsagnir
|
| 15% afsláttur | Harðspjöld ~ 255 bls ~ nóv. 1995 ~ 12,5×20,5 cm ~ Verð 2.800 kr. |
|
Tilboðsverð: 2.380 kr. |
Panta Ennislokk einvaldsins |
books@ormstunga.is Sími 561 0055 Fax 552 4650 Upp Forsíða