ISBN 9979-63-012-4 Illugi Jökulsson
Guðmundur frá Miðdal

Illugi Jökulsson rekur sögu þessa eldheita hugsjónamanns en einnig er vitnað til vina hans jafnt sem andstæðinga og birtir ítarlegir kaflar úr skrifum hans sjálfs.

Útlitshönnun: Aukning ehf / Hörður og Kristín.

Ungur maður úr Mosfellssveit heldur til myndlistarnáms í Þýskalandi snemma á öldinni, þar sem hann kynnist fyrirsætu sem kemur á eftir honum heim að loknu námi og giftist honum, en hann tekur fljótlega saman við dóttur hennar og eignast með henni börn og soninn Erró þar fyrir utan. Hann er sagður óforbetranlegur kvennabósi.

Hann er einn fjölhæfasti listamaður sem Ísland hefur alið, teiknari, grafíker, málari, myndhöggvari, ljósmyndari, kvikmyndagerðarmaður og rithöfundur.

Hann stundar list sína árum saman með frábærum árangri og gerist brautryðjandi í leirmunagerð á Íslandi en kemst strax upp á kant við ýmsa samferðamenn sína í listrænum efnum.

Hann lætur heillast af hálendinu, sem verður honum ótæmandi uppspretta listsköpunar, og hann gerist forkólfur í fjallaferðum.

Hann er ástríðufullur veiðimaður og efni í mestu tröllasagnir íslenskrar veiðimennsku.

Hann er riddari í erlendum leynireglum og tekur þátt í dularfullum launhelgum og fer sálförum.

Hann ...

Hann var Guðmundur frá Miðdal.

  Harðspjöld ~ 256 bls ~ des. 1997 ~ 21×28 cm

4.157 kr.

UPPSELD


books@ormstunga.is     Sími 561 0055    Upp  Forsíða