ISBN 978-9979-63-101-9

Hákon Sigurgrímsson
Svo þú ert þessi Hákon!
Æviminningar

Stærri mynd

Bjarney Hinriksdóttir hannaði kápu.

Ljósmynd á kápu: Jóhannes Long.

Bókin er prýdd fjölmörgum myndum úr lífi og starfi höfundar.

Umsögn

 


Fyrrverandi framkvæmdastjóri Stéttarsambands bænda rifjar upp minningar frá uppvexti sínum í Flóanum og viðburðaríkum starfsferli.

 

Þegar hann hóf störf hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins á 7. áratug síðustu aldar stóð íslenskur landbúnaður frammi fyrir afleiðingum offramleiðslu í kjölfar vaxandi tæknivæðingar og aukinnar framleiðslugetu. Miklu varðaði að þessi undirstöðuatvinuvegur þjóðarinnar í þúsund ár kæmi standandi niður úr því umróti.

 

Hákon átti þátt í að móta þær aðferðir sem þar var beitt, m.a. sem aðstoðarmaður Steingríms Hermannssonar.  En Hákon kemur víðar við. Hann segir frá eftirminnilegum mönnum og lýsingar hans á bændafundum eru ógleymanlegar.

 

Hér er líka í fyrsta sinn sagt opinskátt frá tilraunum framsóknarmanna til að framlengja líf Tímans í nýju dagblaði, NT.

 

Og ást höfundar á tónlistinni fer ekki fram hjá lesendum. Hákon segir frá áralangri þátttöku sinni í Pólýfónkórnum og störfum sínum fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands, en hann var fyrsti formaður stjórnar hennar.

 

Efnisyfirlit

Leskafli

 

TILBOÐ: 15% afsláttur Harðspjöld ~ 487 bls ~ nóvember 2010 ~ 15x23 cm ~ Venjulegt verð: 5.900 kr.

 5.000 kr.

Panta

books@ormstunga.is     Sími 561 0055    Forsíða