ISBN 978-9979-63-105-7 |
Eric
Weiner Hamingjulönd Landafræði lukkunnar |
Íslensk
þýðing: New York Times Bestseller „Eftir að
hafa lesið Hamingjulönd fannst mér ég hafa verið á hraðferð um
heiminn með áhugasömum og vel upplýstum leiðsögumanni sem nýtti sér
mikilvægan en lítt notaðan áttavita: hamingjuna.“ „…
það er unun að lesa þessa ferðasögu mannshugans.“ Segir Íslendinga enn hamingjusama
|
Ólundarseggur leitar uppi hamingjuríkustu staði í heimi.
Ótaldir höfundar hafa reynt að útlista hvað hamingja er. Færri hafa sýnt okkur hvar hún er, hvers vegna sumir staðir virðast hamingjuríkari en aðrir og hvernig létta megi lundina með því að skipta um samastað eða bara með því að ferðast.
Eftir að hafa fjallað um ófrið, náttúruhamfarir og hvers kyns mannlega eymd um víða veröld í tvo áratugi ákvað Eric Weiner að snúa blaðinu við og leita uppi hamingjuríkustu lönd jarðar.
Með hamingjusálfræði (positive psychology) og gervallan sjálfshjálpariðnaðinn að leiðarljósi hélt hann út í heim og kynnti sér leiðina að lukkunni. Heimspekingar og hamingjufræðingar vísa honum veginn og saman fara þeir í langt og gáskafullt ferðalag.
Í Himalajafjöllum uppgötvar hann verga þjóðarhamingju, hann stundar hugleiðslu í Bangalore, heimsækir nektardansstaði í Bangkok, borðar hákarl og drekkur sig næstum rænulausan í Reykjavík.
|
| TILBOÐSVERÐ: | Mjúk spjöld ~ 329 bls ~ okt. 2011 ~ 15,3×23,0 cm ~ Verð: 3.790 kr. |
|
3.220 kr. |
Panta |
books@ormstunga.is Sími 561 0055 Forsíða