ISBN 9979-63-27-2 Jóhanna Sveinsdóttir
Hratt og bítandi
- matreiðslubók og margt fleira

 

„Ég lærði að elda upp úr pistlum hennar í gamla daga  og bókin er afar falleg að fletta.“

 Guðmundur Andri Thorsson

 

„Með vel völdum dæmum tekst höfundi ekki einungis að skemmta lesandanum heldur einnig að draga upp forvitnilega mynd af því hvernig viðhorf til matar hefur þróast í gegnum aldirnar.“

 Steingrímur Sigurgeirsson - Mbl.

 

Í þessari fallegu bók um ævintýri matargerðarlistarinnar eru menningarsögulegir þankar um mat og matreiðslu, pistlar um næringarfræði, ljúfar veigar og margt fleira. Fjölbreytilegar uppskriftir að gómsætum réttum kóróna verkið ásamt hrífandi ljósmyndum Áslaugar Snorradóttur.  

Jóhanna Sveinsdóttir var mikil heimskona, en ræktaði jafnan Íslendinginn í sér af mikilli alúð, enda bókmenntafræðingur, ljóðskáld og íslenskukennari með meiru.

Álfheiði Hönnu Friðriksdóttur, dóttur Jóhönnu, og Áslaugu Snorradóttur ljósmyndara fannst því tilvalið að feta í fótspor Jóhönnu, og héldu þær til Frakklands þar sem Álfheiður Hanna eldaði mat fyrir linsu Áslaugar.

Ólöf Birna Garðarsdóttir, útlitshönnuður bókarinnar, vann síðan úr því hráefni sem lá fyrir við heimkomuna: texta Jóhönnu og myndum Áslaugar. 

Hratt og bítandi er ekki bara vönduð matreiðslu- og uppskriftabók heldur er um að ræða matarviskubók stútfulla af fróðleik, speki, orðagaldri og lífslist höfundar.

  15% afsláttur 286 bls. ~ okt. 2000 ~ 24×27,5 cm

2.967 kr.

Uppseld!

books@ormstunga.is     Sími 561 0055    Upp  Forsíða