ISBN 9979-63-032-9 Stefán Aðalsteinsson
Íslenski hesturinn
- litir og erfðir

Ljósmyndir eftir Friðþjóf Þorkelsson

 


Litaskrúð sem engin önnur þjóð á.

Hesturinn hefur verið Íslendingum nákominn allt frá því á landnámsöld. Hvergi hafa hestalitir varðveist jafn vel og á Íslandi. Hér lögðu menn alúð við breytilega liti. Það var krydd í lífi hestamannsins að geta átt gæðing með sérstæðum og sjaldgæfum lit.

Fágætir litir geymdust þess vegna hér ásamt litaheitunum. Þekking manna á litunum var svo djúpstæð löngu fyrir tíma allra vísinda að menn greindu á milli lita sem stöfuðu af mismunandi erfðavísum.

Með nýjum erfðavísi kom nýtt litanafn. Það var eins og Íslendingar fyndu á sér lögmál erfðafræðinnar löngu áður en sú vísindagrein varð til.

Á þessari aldalöngu þekkingu byggir dr. Stefán Aðalsteinsson skýringar sínar um erfðir hestalita sem hann hefur hlotið alþjóðaviðurkenningu fyrir.

Í bókinni setur hann fram umfangsmikinn fróðleik um hestaliti og erfðir á þeim á alveg nýjan hátt, sem auðveldar hestamönnum að tileinka sér þennan mikilvæga þátt í eðli íslenska hestsins.

Fallegar ljósmyndir Friðþjófs Þorkelssonar auka mjög gagnsemi bókarinnar og gleðja augu lesandans.

 

 15% afsláttur Harðspjöld ~ 155 bls ~ des. 2001 ~ 16,8×24,0 cm ~ Venjulegt verð: 3.270 kr.

TILBOÐ: 2.780 kr.

PANTA

books@ormstunga.is     Sími 561 0055    Forsíða