ISBN 978-9979-63-108-8 |
Unnur
Guttormsdóttir Það kviknar í vestrinu |
|
Ljóðminningar frá björtum sumrum í sveitinni í Grundarfirði þegar krían kom með vorið og sendi telpuna í Reykjavík vestur á land þar sem frænka tók á móti henni, mjúk eins og nýstrokkað smjör.
Og eintómir strákar á heimilinu! Af blárósóttri undirskálinni sýgur langamma kaffi gegnum sykurmola. Þannig eru hinar hugþekku myndir sem höfundur bregður upp frá horfinni tíð.
„Fyrsta
ljóðabók Unnar Guttormsdóttur, Það kviknar í vestrinu,
dregur upp stuttar svipmyndir af sumardvöl borgarbarns í sveitinni
um miðja síðustu öld. Ljóðin eru dæmi
um það hvernig fortíðin getur lifnað við með réttu orðunum og orðið
næstum raunverulegri en nútíðin.“
|
| TILBOÐSVERÐ: | Kilja ~ 65 bls ~ okt. 2011 ~ 13,4×21,2 cm ~ Verð: 2.140 kr. |
|
1.800 kr. |
Panta |
books@ormstunga.is Sími 561 0055 Forsíða