Leikrit I III
Heildarútgáfa leikrita Guðmundar Steinssonar.
Inngangur eftir dr. Jón Viðar Jónsson.

 


Efnisyfirlit

Jón Viðar Jónsson:
Formáli.
Endurtekning, endurskoðun, endurnýjun
Inngangur að   leikritun Guðmundar Steinssonar.
Forleikur á sjötta áratugnum: tvö raunsæisleikrit.
–– Sjöundi áratugurinn: Dæmisöguleikir og þjóðfélagsádeilur.
–– Áttundi áratugurinn: draugagangur á heimilinu.
–– Níundi og tíundi áratugurinn: á vit mýtu og draums.
–– Þrír einþáttungar.

  • Myndir úr úr lífshlaupi skáldsins

  • Fjölnir

  • Tvíleikur

  • Fósturmold

  • Sæluríkið

  • Forsetaefnið

  • Þjóðlíf

  • Húsið

  • Skírn

  • Lúkas

  • Þjóðhátíð

  • Sólarferð Viva España

  • Sólarpakki

  • Ljósmyndir úr íslenskum frumsýningum

  • Stundarfriður

  • Garðveisla

  • Brúðarmyndin

  • Katthóll

  • Spegilmyndin

  • Hjartsláttur

  • Stakkaskipti

  • Líftryggingin eða örlög innheimtumannsins

  • Þrætuepli

  • Rómeó

  • Ljósmyndir úr erlendum sýningum

  • Ljóð til leikritaskálds

  • Frumsýningar á verkum Guðmundar Steinssonar

Þetta rit er heildarsafn leikrita Guðmundar Steinssonar, alls tuttugu og tvö leikrit.

Einungis fimm þeirra hafa verið hvort tveggja sviðsett og prentuð áður: Þjóðhátíð, Sólarferð, Stundarfriður, Garðveisla og Brúðarmyndin. Birtust tvö þau fyrsttöldu í tímaritinu Lystræninginn (197677 og 1981), sem mun nú í fárra höndum, hin þrjú á bók um líkt leyti og þau voru sýnd í Þjóðleikhúsinu.

Sjö hafa verið sýnd á sviði, en ekki komið á prent: Forsetaefnið, Fósturmold, Sæluríkið, Skírn, Lúkas, Stakkaskipti og einþáttungurinn Rómeó sem var frumsýndur í Pernü í Eistlandi árið 1992 en hefur ekki verið sýndur hér á landi til þessa.

Níu hafa hvorki verið sviðsett né prentuð áður: Fjölnir, Tvíleikur, Þjóðlíf, Húsið, Sólarpakki, Katthóll, Spegilmyndin, Hjartsláttur og einþáttungurinn Þrætueplið.

Þá er aðeins ótalinn lítill einþáttungur, Líftryggingin eða örlög innheimtumannsins, sem birtist í Félagsbréfi Almenna bókafélagsins árið 1960 og hefur aldrei komið á svið, svo vitað sé.

Nítján leikrit birtast hér því á bók í fyrsta sinn og þarf ekki að orðlengja um það að slíkt er einstakur viðburður í íslenskri útgáfusögu.

books@ormstunga.is     Sími 561 0055   Fax 552 4650    Upp  Forsíða