ISBN 978-9979-63-054-8 Eyþór Einarsson, Freysteinn Sigurðsson
Guðrún Ólafsdóttir, Gunnar Jónsson
Karl Skírnisson, Leifur A. Símonarson
Páll Imsland

Landfræðissaga Íslands V
Lykilbók - Viðaukar og skrár

Hönnun: Auglýsingastofa Skaparans

Mynd á kápu er gerð eftir höggmynd Ríkarðs Jónssonar

Stærri mynd

Efnisyfirlit

Meiri fróðleikur

Hvað segir Jón Eyþórsson?

Útgáfunefnd

Landfræðissaga Íslands eftir Þorvald Thoroddsen kom fyrst út á árunum 1892-1904. Hún hefur að geyma frásagnir af hugmyndum manna, innlendra sem erlendra, um Ísland og íbúana og af rannsóknum á landinu frá upphafi vega fram undir lok 19. aldar.

 

Hefst frásögnin á siglingu Forn-Grikkja á hafinu fyrir norðan Bretlandseyjar og hugsanlegri komu þeirra til Íslands (Thule). Raktar eru furðufrásagnir sem miðaldamenn settu saman af þessu undarlega landi elds og ísa. Þótt frásögnin skýrist dálítið, þegar tímar liðu fram, örlar lítið á því að útlendingar geri sér réttar hugmyndir um landið sjálft og íbúa þess.

 

Undir lok sextándu aldar fóru Íslendingar að setja saman bækur á latínu til þess að kynna erlendum mönnum land sitt og þjóð. En raddar þeirra gætti helsti lítið í samfelldum kór fáfræði og ýkjusagna. Það er í rauninni ekki fyrr en eftir miðja átjándu öld, með leiðangri þeirra Eggerts og Bjarna, sem vísindaleg rannsókn landsins hefst og hinar þjóðsagnalegu víkja. Báða þessa þætti rekur Þorvaldur Thoroddsen rækilega og að jöfnu í verki sínu, og er gildi þess ekki síst fólgið í því.

 

Í þessu lokabindi Landfræðissögunnar draga fræðimenn saman umfjöllun Þorvalds og afstöðu hans til hinna ýmsu greina fræðanna, hver fyrir sína sérgrein. Jafnframt er dregin upp mynd af ævi Þorvalds og útgáfusaga frumútgáfu Landfræðissögunnar rakin.

 

Síðast en ekki síst eru í bókinni mjög ítarlegar heimildaskrár og nafna- og atriðisorðaskrá. Rit sem Þorvaldur þekkti ekki hafa nú komið í leitirnar. Fjölmargar íslenskar heimildir sem áður voru á víð og dreif eða aðeins til í handritum hafa verið prentaðar. Útlendar bækur um Ísland hafa verið þýddur á íslensku og áður ófáanlegar bækur hafa verið endurútgefnar. Þessum nýju útgáfum hefur verið bætt við heimildaskrána, en slík skrá var ekki í frumútgáfunni.

 

Landfræðissaga Íslands er mikil náma um sögu og náttúru landsins og verkið er enn undirstöðurit um mikil­væga þætti í könnunarsögu landsins.

ISBN 9979-63-054-8. Harðspjöld, 300 bls. Verð: 7.490 kr. Hönnun: Auglýsingastofa Skaparans. Mynd á kápu er gerð eftir höggmynd Ríkarðs Jónssonar. Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi. Útgefandi er Ormstunga.

Höfundar eru Eyþór Einarsson grasafræðingur, Freysteinn Sigurðsson jarðfræðingur, Guðrún M. Ólafsdóttir landfræðingur, Gunnar Jónsson fiskifræðingur, Karl Skírnisson dýrafræðingur og jarðfræðingarnir Leifur A. Símonarson og Páll Imsland.

 15% afsláttur Harðspjöld ~ 300 bls ~ nóvember 2009 ~ 14×21 cm ~ Verð 7.490 kr.

 Tilboðsverð: 6.367 kr.

Panta 5. bindi...

books@ormstunga.is     Sími 561 0055    Forsíða