ISBN 9979-63-005-1 Klaus Mann
Mefistó
Saga af listamannsferli
í þýðingu Bríetar Héðinsdóttur.

Bókin heitir Mephisto á frummálinu og kom fyrst út 1936.

 


Mefistó er eitt helsta bókmenntaverk þýskra útlaga á uppgangstímum nasista. Klaus Mann lýsir hér hvernig aðlögun og undirlægjuháttur plægir akurinn fyrir gerræði fasismans.

Með leikaranum Hendrik Höfgen er dregin upp mynd af meðreið lista- og menntamanns sem gerir hann samsekan þó að hann fremji enga stórglæpi sjálfur. Hann varpar pólitískri sannfæringu sinni fyrir róða og rýfur öll manneskjuleg og siðferðileg tengsl til þess að tryggja listrænan frama sinn og samband við valdhafa þjóðernissósíalismans.

Sagan kom fyrst út 1936 í Amsterdam, enda sjálfkrafa bönnuð í heimalandi höfundar, þar sem hún birtist ekki fyrr en 20 árum seinna, og þá í Austur-Þýskalandi. Vesturþýskt forlag hugðist gefa söguna út 1963, en útgáfan var stöðvuð. Þetta varð upphaf frægustu málaferla í Þýskalandi eftir stríðslok vegna bókar. Þegar hún var svo loks gefin út í Vestur-Þýskalandi 1981 vakti hún strax feiknaathygli hefur síðan selst í milljónaupplögum og verið þýdd á meira en tuttugu tungumál.

Sjö ára réttarhöld, fimmtán ára bann, umtöluð endurútkoma, leikrit, kvikmynd og þýðingar á fjölda tungumála hafa fyrir löngu gert Mefistó heimsfrægan

Í eftirmála er ítarleg umfjöllun um Klaus Mann eftir þýðandann, Bríeti Héðinsdóttur.

 15% afsláttur Harðspjöld ~ 320 bls ~ nóv. 1995 ~ 16×23,5 cm

  2.372 kr.

Panta

books@ormstunga.is     Sími 561 0055   Forsíða