ISBN 9979-63-030-2 Samuel Beckett
Molloy
Trausti Steinsson íslenskađi.
Sigurđur A. Magnússon ritar eftirmála.

Molloy var í hópi 100 bestu bóka allra tíma sem valdar voru áriđ 2002.

Molloy er fyrsta skáldsagan eftir hinn heimsfrćga rithöfund, Samuel Beckett, sem kemur út á Íslandi. Beckett er eflaust ţekktastur fyrir leikrit sitt, Beđiđ eftir Godot, en flestir ţeirra sem hafa fjallađ um höfundinn og verk hans telja ađ skáldskapur hans rísi hćst í Molloy, snilldarlegri frásögn – og mjög fyndinni á köflum – af manni sem ferđast um á hjóli međ stífan fót og hćkjur í leit ađ móđur sinni međan staurfóturinn styttist og betri fóturinn stífnar. Sagan er draumkennd leiđsla gegnum tíma og rúm ţar sem framvindan hverfist um biđ, leit, minningar og minnisleysi – fánýti tilverunnar.

Bókin skiptist í tvo hluta. Í fyrri hlutanum segir Molloy sögu sína. Hann er tannlaus og illa til fara. Hann sefur á daginn og hugarstarfsemin virđist fyrst fara í gang ţegar náttar – nákvćmlega eins og hjá Beckett. Í seinni hlutanum kemur Moran til sögunnar, sendur út af örkinni til ađ leita ađ Molloy.

Höfundurinn hlaut Nóbelsverđlaunin 1969.


 15% afsláttur Kilja ~ 208 bls ~ nóv. 2001 ~ 12,5×21,2 cm

  1.020 kr.

Skođa Panta

books@ormstunga.is     Sími 561 0055   Forsíđa