ISBN 9979-63-031-0 Poul Vad
Norðan Vatnajökuls

Úlfur Hjörvar íslenskaði

 


Árið 1970 kom danski rithöfundurinn og listfræðingurinn Poul Vad (f. 1927) til Íslands, dreginn þangað af kynnum sínum af Íslendingum og þó einkum Hrafnkels sögu Freysgoða.

Hann fór þá einn á Landrover um slóðir Hrafnkötlu, en hér tekur hann lesandann með í þessa tvíþættu ferð um land og sögu, en samferða eru líka m.a. þeir Cervantes og Machiavelli, enda berst margt skemmtilegt og óvænt í tal.

Ferðasöguna kryddar höfundur svo enn frekar frásögnum af íslenskum samtíðarmönnum og Íslandi nútímans, sem hann hefur heimsótt nokkrum sinnum síðan, seinast sem gestur á Bókmenntaþingi 1995.

Norðan Vatnajökuls hefur verið þýdd á önnur mál og hefur t.d. þýska útgáfan selst í stórum upplögum í þýskumælandi löndum og verið verðlaunuð.

Hrafnkatla er meistaraverk, heimsbókmenntir. Bók Pouls Vad er að minnsta kosti meistaraverk.
Preben Meulengracht Sørensen, Jyllands-Posten 12. 10. 1994

Poul Vad hefur skrifað afbragðsgóða, fróðlega og bráðskemmtilega bók
Aldo Keel, Neue Zürcher Zeitung, 24. 09. 1998

 

 15% afsláttur Kilja ~ 154 bls ~ des. 2001 ~ 12,5×21,2 cm

842 kr.

Panta

books@ormstunga.is     Sími 561 0055   Forsíða