ISBN 9979-63-011-6 Andrés Ragnarsson
Setjið súrefnisgrímuna fyrst á yður - að eiga fatlað barn eða langveikt

Mér finnst bókin lýsa erfiðri og sársaukafullri sjálfsskoðun greinds manns, og hugrakkt af honum að leysa frá skjóðunni á þennan hátt. Hann miðlar lesandanum af reynslu sinni og tilfinningaflækjum, sem honum hefur tekizt ótrúlega vel að skilgreina og leysa úr.

Katrín Fjeldsted, Morgunblaðið

 

Þrennt vakir fyrir höfundi með því að skrifa þessa bók. Í fyrsta lagi að skrifa hagnýta bók sem auðveldar fjölskyldum að líta í eigin barm við aðstæður sem þær völdu sér ekki sjálfar. Í því augnamiði setur hann fram flókið og sárt ferli á aðgengilegan hátt. Höfundurinn, sem er faðir fjölfatlaðs drengs, lýsir af hreinskilni og næmni hvernig foreldrar fatlaðra barna leiðast út í að hafa þarfir þeirra svo í fyrirrúmi að um meðvirkni verður að ræða líkt og hjá aðstandendum áfengissjúklinga.

Í öðru lagi grandskoðar höfundurinn samskipti foreldra og fagfólks í ljósi sinnar eigin reynslu og annarra foreldra. Einkum beinir hann athygli sinni að foreldrum sem stundum eru nefndir „erfiðir“.

Í þriðja lagi hefur Andrés Ragnarsson með þessari bók bætt úr brýnni þörf á kennsluefni fyrir þær starfsstéttir sem sinna málefnum fjölskyldna fatlaðra og langveikra barna.

Setjið súrefnisgrímuna fyrst á yður … er bók, sem á erindi við þá sem í lífi sínu eða starfi tengjast fötluðum og langveikum börnum, og alla þá sem láta sig varða mannlegar tilfinningar og samskipti.

Teikningar eru eftir Ingvar Guðnason sálfræðing.

Stefán Hreiðarsson, barnalæknir og forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins, ritar formálsorð.

Bókin kom út í Danmörku í ágúst 2005.

 15% afsláttur Kilja ~ 133 bls. ~ 1997 ~ 12,5×20 cm

 1.581 kr.

Uppseld !

books@ormstunga.is     Sími 561 0055   Fax 552 4650    Upp  Forsíða