| ISBN 9979-63-029-9 | Ágúst Borgţór Sverrisson Sumariđ 1970 - smásögur |
Logi Jes Kristjánsson hannađi kápu.
|
Hér er á ferđinni fjórđa smásagnasafn höfundar. Snemma árs 2001 hlaut hann fyrstu verđlaun í smásagnasamkeppni hjá vefgáttinni strik.is fyrir eina af sögunum í bókinni, en 350 sögur bárust í keppnina. Veitt voru glćsileg verđlaun, 250 ţúsund krónur, hćstu verđlaun sem veitt hafa veriđ fyrir smásögu hér á landi. Dómnefndin var einróma í vali sínu á sigursögunni og í áliti hennar kemur m.a. fram ađ sagan sé „ekki einasta ákaflega vel stíluđ og uppbyggđ, heldur til marks um ađ höfundurinn hefur ţrauthugsađ form smásögunnar og notar möguleika hennar af listfengi og kunnáttu. Sögumađur rifjar upp bernskuár í skugga bróđur sem dó; frásögnin einkennist af hlýju, mannskilningi og fínlegum húmor.“ Má nú hiklaust telja Ágúst međal merkisbera smásögunnar á Íslandi. Önnur saga í nýju bókinni, „Bćnheyrđur“ hlaut 2. verđlaun í smásagnasamkeppni dagblađsins Dags og MENOR og birtist í Degi voriđ 2000. Um helmingur bókarinnar eru uppvaxtarsögur frá áttunda áratugnum en ađrar sögur gerast á síđustu árum og lýsa ţá gjarnan fólki sem ólst upp á fyrrgreindu tímabili. Flestar sagnanna fjalla á einn eđa annan hátt um fjölskyldubönd: t.d. er sagt frá ungri konu sem endurtekur lífsmynstur móđur sinnar án ţess ađ gera sér grein fyrir ţví, önnur saga fjallar um ungan mann sem reynir óvenjulega ađferđ til ađ jafna sig eftir sambúđarslit, fjölskyldumađur á framabraut hefur efasemdir um tryggđ eiginkonu sinnar, unglingspiltur lifir í skugga látins bróđur síns og ungum dreng ţykir fađir sinn heldur misheppnađur í samanburđi viđ skáksnillinginn Bobby Fischer. Samantekiđ er höfundur trúr ţeirri nútímakröfu til smásagnasafna ađ hafa í senn sögur sínar fjölbreyttar og láta ţćr bera heildarsvip. Smásagnasafn höfundar, Hringstiginn, kom út 1999. Áriđ 2004 kom út annađ safn smásagna, Tvisvar á ćvinni.
|
| 15% afsláttur | Harđspjöld ~ 111 bls ~ nóv. 2001 ~ 12,5×21,2 cm |
|
1.267 kr. |
Panta |
books@ormstunga.is Sími 561 0055 Forsíđa