ISBN 978-9979-63-103-3

Jónas Þór
Varðinn í vestri

Stærri mynd

 

Árið 1911 lögðu Vestur-Íslendingar frændum og vinum á Íslandi lið í almennri fjársöfnun. Tilgangurinn með henni var að heiðra Jón Sigurðsson á hundrað ára fæðingarafmæli hans.

 

Framlagið í Vesturheimi var svo myndarlegt að afráðið var að gera afsteypu af styttunni sem Einar Jónsson hafði gert og senda vestur um haf. Minnisvarðinn prýðir nú  þinghúsgarðinn í Winnipeg og er sérstakt sameiningartákn.

 

Vesturfarar og afkomendur  þeirra í Norður-Ameríku stóðu með þessari myndarlegu söfnun að eftirtektarverðu þjóðræknisátaki sem enn lifir vestan hafs.

 

Jónas Þór sagnfræðingur rannsakaði tildrögin að þessu framtaki Vestur-Íslendinga og rekur sögu söfnunarinnar og hvaða áhrif hún hafði á vesturíslenskt samfélag.

 

TILBOÐSVERÐ: Kilja ~ 145 bls ~ júní 2011 ~ 15,3×23,0 cm ~ Verð: 2.990 kr.

  2.540 kr.

Panta

books@ormstunga.is     Sími 561 0055    Upp  Forsíða