Raddir frá Hólmanesi

eftir Stefán Sigurkarlsson

 

 

Raddir frá Hólmanesi er nýtt safn ellefu smásagna eftir Stefán Sigurkarlsson. Höfundurinn hefur áđur sent frá sér nokkrar bćkur, ţar á međal Hólmanespistla áriđ 1995, sem ég geri af augljósum ástćđum ráđ fyrir ađ kallist á viđ ţá bók sem hér um rćđir, en ţví miđur hef ég ekki lesiđ Hólmanespistla (ţví mun ég hins vegar drífa í ţegar ég hef útvegađ mér eintak).

 

Raddir frá Hólmanesi er býsna skemmtileg bók. Sögurnar gerast hérlendis og erlendis á ýmsum tímum, flestar ţó í Hólmanesi eđa í íslenskri sveit í grennd viđ ţađ uppdiktađa ţorp viđ Jökulflóa (sem minnir mjög á Stykkishólm). Endirinn er oft óvćntur og sögurnar einkennast af ţćgilegum húmor og huggulegheitum ţó efniđ sé gjarna meinlegt, tregablandiđ eđa hreinlega sorglegt. Stíllinn er léttur og litríkur, algjörlega tilgerđarlaus og hvergi hrođvirknislegur.

 

Ég get vel ímyndađ mér ađ legiđ hafi veriđ yfir textanum og dedúađ viđ setningar. Stefán Sigurkarlsson notfćrir sér íslenska frásagnarhefđ, mannlýsingar eru oftar en ekki í anda ýmiss konar gamalla sagnaţátta af einkennilegum mönnum og hann bregđur líka fyrir sig dćmigerđum ţjóđsagnastíl en stundum er lesandanum kippt til baka inn í nútímann svo minnir á stílbrögđ sem Ţórarinn Eldjárn er ţekktur fyrir. Viđ sögu kemur íslenskt alţýđufólk og betriborgarar en einnig útlendingar, hinn frćga Dana Simon Spies ber til dćmis á góma og sömuleiđis líkţornaplástraframleiđandann heimsţekkta Doktor Scholl. Sögurnar eru sagđar í fyrstu persónu en stundum hafđar eftir hinum og ţessum og skemmtilegar líkingar og persónulegar útleggingar frásagnarmannsins um fólk og fyrirbćri lyfta frásögninni. Ég á örugglega eftir ađ grípa oft í ţessa bók.

 

P.S. Raddir frá Hólmanesi (sem Ormstunga gefur út) er fallega unnin og umbrotin og fer vel í hendi, vasa eđa tösku.

 

Ţórdís Gísladóttir 8. desember 2009


books@ormstunga.is     Sími 561 0055    Upp  Forsíđa