Bankster

1.330 kr.1.890 kr.

1.890 kr.
1.330 kr.
Setja í körfu

Uppseld

Efni

Aðalpersónur þessarar sögu eru Markús sem í upphafi sögunnar vinnur í Landsbankanum og Harpa, sambýliskona hans, sem starfar í Kaupþingi. Þau eru 28 og 27 ára. Sögusviðið er Reykjavík veturinn 20082009.

Markús fer eftir ráðgjöf vinar síns og heldur dagbók eftir að hafa misst starfið í bankanum. Skömmu síðar missir Harpa vinnuna en lætur ekki deigan síga og innan skamms fær hún nýtt starf sem afleysingakennari í grunnskóla.

Markús aftur á móti leggst í bókalestur og leitar skjóls í dagbókinni sem brátt verður að minnisbók og stefnir í að verða skáldskaparlegt sjónarhorn á viðburði vetrarins og framtíðarmissinn sem fylgir í kjölfarið. Frásögn Markúsar hefur tilhneigingu til að hverfast um ástkonuna. Hún verður fljótlega aðalviðfangsefnið en hin mótaða framtíð virðist mega sín lítils; það er engu líkara en lífið sé ekkert nema skáldsaga í mótun.

Úr verður ástarsaga, spennusaga og glímusaga. En líka ævintýri, og á sama tíma látlaus saga og samt óvænt saga. Eftirminnileg frásögn af áhrifum bankahrunsins á veruleika okkar og þankagang.

Guðmundur Óskarsson fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin 2009 fyrir Bankster.

Útgáfur:
2009 – harðspjöld  – 179 bls.
2010 – kilja – 176 bls.
2023 – rafbók

Gagnrýni

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,200 kg
ISBN

978-9979-63-094-4 (harðspjöld)
978-9979-63-099-9 (kilja)
978-9979-63-119-4 (rafbók)

Kápuhönnun

Guðmundur R. Steingrímsson

Umbrot

Gísli Már Gíslason

Brot

13,5×21 cm (harðspjöld)
12×20 cm (kilja)

Prentun

Prentsmiðjan Oddi (harðspjöld)
Leturprent (kilja)