Bréf til Haralds

1.990 kr.

Til heiðurs Haraldi Bessasyni sjötugum 14. apríl 2001

Ritstjórar: Baldur Hafstað og Gísli Sigurðsson

430 bls., harðspjöld

Útgáfuár: 2001

Efni

Haraldur Bessason fékk þessa bók í afmælisgjöf frá vinum sínum þegar hann varð sjötugur þann 14. apríl 2001. Þessi stórskemmtilegu bréf draga mjög dám af fjölbreyttri starfsævi Haralds.

Áhugamál vina hans verða ekki felld að neinni einni fræðigrein og bera skrif þeirra þess glöggt vitni. Efnið snertir vesturíslenska menningu og málfar, skagfirskar heimaslóðir afmælisbarnsins, íslenskan landbúnað, sögu, þjóðfræði og bókmenntir, Menntaskólann á Akureyri sem fóstraði Harald á árunum kringum 1950, Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri.

Margir bréfritara, en þeir eru alls 46, rifja upp sameiginlegar stundir með Haraldi forðum daga og gera þar með bókina persónulegri en títt er um heiðursrit af þessu tagi og öllum bréfriturum er það sameiginlegt að skrifa leikandi léttan stíl, enda sumir þjóðkunnir pennar.

Fáein bréfanna frá vinum vestra eru skrifuð á ensku.

Hverjir skrifuðu Bréf til Haralds?

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,940 kg