Styrjöldin í Selinu

2.320 kr.

Ritnefnd:
Ágúst Guðmundsson
Ásgeir Sigurgestsson
Gísli Már Gíslason
Heimir Sindrason
Sigurður St. Arnalds

160 bls. – harðspjöld

Útgáfudagur: 19. janúar 2019

Efni

Í febrúar 1965 var þriðja heimsstyrjöldin sett á svið í Menntaskólaselinu. Atburðurinn brenndi sig í vitund grandalausra nemendanna, þáverandi fjórðubekkinga í MR, þannig að enginn er samur eftir, meira en hálfri öld síðar.

Í bókinni rifja þolendur og gerendur upp viðburðinn og skoða í víðara samhengi.

Þessir eftirminnilegi atburður varð síðar kveikjan að sjónvarpsmynd Ágústs Guðmundssonar, Skólaferð, sem frumsýnd var í Sjónvarpinu 1978. Ágúst var í umræddri Selsferð og fékk hugmyndina að myndinni árið 1971 og tók þá viðtöl við fjölda nemenda sem voru í ferðinni. Þau eru birt í bókinni og varpa merkilegu ljósi á uppákomuna sem varð æsilegt blaðaefni næstu daga á eftir.

Þá eru birtar samtímadagbókarfærslur Ágústs og Ásgeirs Sigurgestssonar sálfræðings. Í öðrum kafla setur Ásgeir atburðinn í samhengi við sambærilega viðburði erlendis og hugmyndir sálfræðinga um hópsefjun.

Nokkrir nemendur líta til baka og setja hugleiðingar sínar á blað. Rætt er við Eirík Haraldsson kennara, sem var í ferðinni, og Sigurður St. Arnalds verkfræðingur segir frá því hvernig hugmyndin að útvarpsgabbinu varð til.

Fjölmargar ljósmyndir prýða bókina.

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,340 kg
ISBN

978-9979-63-123-3

Hönnun og umbrot

Gísli Már Gíslason

Kápumyndir

Efri myndin er úr sjónvarpsmyndinni Skólaferð eftir Ágúst Guðmundsson.
Neðri mynd er tekin af Gísla Má Gíslasyni í febrúar 1965.

Prentun

CPI, Birkach, Þýskalandi.