Svo þú ert þessi Hákon!

2.390 kr.

Höfundur: Hákon Sigurgrímsson

Æviminningar

Útgáfuár: 2010

487 bls. með myndum – harðspjöld

 

Efni

Hákon Sigurgrímsson, yngstur níu systkina frá Holti í Stokkseyrarhreppi, fæddur 1937, rifjar upp æsku sína í Flóanum og viðburðaríkan starfsferil í þágu íslensks landbúnaðar. Ungur heillaðist hann af tónlist og hugðist gera hana að ævistarfi sínu, en það fór á annan veg.

Að námi loknu á 7. áratugnum hóf hann störf hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins og var það upphafið að margháttuðum störfum hans fyrir landbúnaðinn næstu 48 árin.

Hákon segir frá deilum manna um breytingar í landbúnaði vegna offramleiðslu í kjölfar vaxandi tæknivæðingar og aukinnar framleiðslugetu. Miklu varðaði að þessi undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar í þúsund ár kæmi standandi niður úr því umróti. Hákon átti þátt í að móta þær aðferðir sem þar var beitt, m.a. sem aðstoðarmaður þáverandi landbúnaðarráðherra, Steingríms Hermannssonar.  Sem framkvæmdastjóri Stéttarsambands bænda árin 1980–1995 og síðar sem skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu stóð hann í miðjum ólgusjónum og segir nú umbúðalaust frá átökunum um breytta stefnu. Hefur sú saga ekki verið sögð fyrr.

Hann varpar líka ljósi á tilraunir framsóknarmanna á 9. áratugnum til að framlengja líf dagblaðsins Tímans með útgáfu nýs blaðs, NT. Sú barátta var ekki átakalaus og Hákon dregur ekkert undan í frásögn sinni.

En Hákon kemur víðar við. Hann segir frá eftirminnilegum mönnum og lýsingar hans á bændafundum víðs vegar um landið eru ógleymanlegar.

Þótt tónlist yrði ekki ævistarf Hákonar hefur hann komið víða við sögu í þeim efnum m.a. sem fyrsti formaður stjórnar Sinfóníuhljómsveitar Íslands  og með þátttöku í starfi Pólýfónkórsins um árabil.

Fjölmargar ljósmyndir prýða þessa fróðlegu og skemmtilegu bók sem er ekki hvað síst gagnmerk heimild um íslenska landbúnaðarpólitík á seinni hluta tuttugustu aldar.

 

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,010 kg
ISBN

978-9979-63-101-9

Kápuhönnun

Bjarney Hinriksdóttir

Kápumynd

Jóhannes Long

Umbrot

Gísli Már Gíslason

Prentun og bókband

Prentmet