Ágúst Guðmundsson

Ágúst Guðmundsson er einkum þekktur sem kvikmyndaleikstjóri. Land og synir, Með allt á hreinu og Mávahlátur eru meðal átta bíómynda hans. Af fjölmörgum verkefnum fyrir sjónvarp má nefna Gullna hliðið og Nonni og Manni.

Ágúst átti stóran þátt í gerð bókarinnar Styrjöldin í Selinu sem greinir frá því þegar menntaskólanemar stóðu frammi fyrir þriðju heimsstyrjöldinni í ársbyrjun 1965. Sjónvarpsmynd hans Skólaferð er byggð á þessum atburðum.

Hann sendi frá sér skáldsögu í fyrsta sinn í október 2023. Hún nefnist Maður í eigin bíómynd.

Hann hlaut heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar 2023 fyrir framlag sitt til íslenskrar kvikmyndalistar.