Skráð

Þessar tvær passa vel í jólapakkann

Skráð

Gat ekki lagt frá sér Lúx fyrr en í sögulok

Við áttum saman notalega stund í Forlaginu úti á Granda miðvikudaginn 12. nóvember og fögnuðum útkomu nýrrar skáldsögu eftir Ágúst Guðmundsson, Lúx. Hann las upp úr bókinni og vakti ósvikna forvitni áheyrenda um framhaldið.

Einn gestanna lét hafa þetta eftir sér á fésbókinni í kjölfar útgáfuhófsins:

Ágúst hampar Lúx

Ágúst átti stóran þátt í gerð bókarinnar Styrjöldin í Selinu sem greinir frá því þegar þriðja heimsstyrjöldin var sett á svið í ársbyrjun 1965. Fyrir tveimur árum kom út eftir hann skáldsagan Maður í eigin bíómynd þar sem Ingmar Bergman var í aðalhlutverki.

Þetta var skemmtileg og notaleg stund. Hér les höfundur upphaf sögunnar fyrir gesti.