
Ósýnilega kenningin
Hin leynda saga nýfrjálshyggjunnar og hvernig hún náði að stýra lífi þínu
eftir George Monbiot og Peter Hutchison
Kemur út haustið 2026
Við lifum undir áhrifum hugmyndafræði sem ræðst á alla þætti lífs okkar: menntun okkar og störf; heilbrigðisþjónustu og frítíma; samband okkar við annað fólk og andlega vellíðan; plánetuna sem við búum á – loftið sem við öndum að okkur. Hún hefur orðið svo útbreidd að fyrir flesta hefur hún ekkert nafn. Hún virðist óhjákvæmileg, eins og náttúrulögmál.
Ef við rekjum þessa hugmyndafræði aftur til rótanna uppgötvum við að hún er hvorki óhjákvæmileg né óbreytanleg. Hún var upphugsuð, breidd út og síðan hulin af fámennri valdastétt. Hún felur í sér öll stærstu vandamál sem við stöndum frammi fyrir í dag: hnattræna hlýnun, hnignandi lýðræði, vaxandi ójöfnuð, kynþáttafordóma, kynbundið ofbeldi, geðheilbrigðiskreppu og fleira.
Verkefni okkar er að varpa ljósi á þetta – og byggja nýtt kerfi sem er þess virði að berjast fyrir.
Hér má sjá kvikmynd sem gerð var eftir bókinni 2024.
Umsagnir:
„Frábær frásögn og fjálgleg … Þessi sannindi geta fært okkur ákveðið frelsi.“
DANNY DORLING
„Þessi bók er sprengiefni – hún varpar ljósi á illsku nýfrjálshyggjunnar, brýtur niður goðsögnina um að ‚engin önnur leið sé til‘ og leggur grunninn að nýjum stjórnmálum.“
CAROLINE LUCAS
„Þetta er bókin sem við höfum beðið eftir.“
INGRID ROBEYNS
„Hin leynda saga nýfrjálshyggjunnar er í raun hin fullkomna glæpasaga þar sem við komum öll við sögu.“
KEVIN ANDERSON
„Brýn afhjúpun sumra af öflugustu og lævísustu hugmyndum samtímans sem okkur sést jafnan yfir.“
OLUFEMI O. TAIWO
„Óvægin krufning hins mikla hugmyndafræðilega skrímslis.“
DAVID WALLACE-WELLS
„Loksins stutt saga nýfrjálshyggjutrúarbragðanna.“
YANIS VAROUFAKIS
„Lestu hana, vertu reiður, gerðu kröfur um úrbætur!“
GAIA VINCE



