
Í dag kom út bókin í leit að því sem er eftir Sigurð Skúlason.
Á morgun, föstudaginn 2. október er útgáfuteiti í Þjóðleikhúskjallaranum kl. 17:00.
Þessi bók hefur verið mörg ár í smíðum og má í stuttu máli segja að hún sé andleg þroskasaga, en aftan á bókarkápu segir svo:
„Hvað tökum við í arf frá foreldrum okkar og hverju miðlum við áfram til barna okkar? Hvernig komumst við að því hvað er hvurs og hvurs er hvað? En ekki síst: hvar finnum við frið mitt í áreiti og óreiðu nútímans?
Sigurður Skúlason hefur varið drjúgum hluta langrar ævi í þá leit og leið hans legið um ýmis svið samfélagsins – leikhús og listsköpun, pólitík, sálarfræði og alls kyns meðferðir, hugleiðslu og andlegt líf.
Hér á bók ígrundar hann þessa leit og hvar hún endar.“
Í Þjóðleikhúskjallaranum ætlar Sigurður að segja okkur frá bókinni og lesa fáein brot úr henni.
Arnmundur Ernst Backman tekur lagið
Léttar veitingar í boði sem og bókin á tilboðsverði.
Allir hjartanlega velkomnir.



