
Nýlega kom út bókin í l e i t a ð þ v í s e m e r eftir Sigurð Skúlason. Bók sem hefur þegar vakið athygli og sterk viðbrögð lesenda fyrir hreinskiptna lýsingu á leit manns að uppruna eða kjarna eða ættum við að segja innri friði.
Í fyrirrúmi eru samskipti kynslóðanna, foreldra og barna, og sá arfur sem við miðlum stöðugt áfram, oftar ómeðvitað en meðvitað.
Lesandinn fylgir Sigurði eftir langa leið, alveg frá upphafi í móðurkviði til dagsins í dag, heil áttatíu ár, leið sem liggur um ýmis svið samfélagsins eins og leikhús og listir, pólitík, sálarfræði og meðferðir, hugleiðslu og andlegt líf. Og allt til enda leitar.
Bókin fæst í helstu bókabúðum og hjá útgefanda og höfundi.



