Efni
Þetta er síðasta spjallbók höfundar að eigin sögn. Hér er sem áður allt í belg og biðu og ekkert gert til að setja textann í bása eða mjólka með vélum.
Tilgangurinn er vitaskuld afþreying en ekki sakar ef lesendur finna einhverjar góðar meiningar á bak við.
Til eru barnabækur, unglingabækur og venjulegar bækur, en höfundur hefur ekki heyrt getið um eldrafólksbækur; kannski mætti, eftir undirtektum að dæma, kalla þessar spjallbækur svo.
Þakkir frá bóka- og ferðaklúbbum, hjúkrunarheimilum, ýmsum góðgerðafélögum og svo framvegis benda til þess. En vonandi á kverið erindi við öll aldursskeið, þó að höfundur sé ekki kornungur.







