Sigurður Skúlason

Sigurður Skúlason (f. 1946) útskrifaðist frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1967 og hefur leikið við Þjóðleikhúsið hátt á annað hundrað hlutverk auk þess að hafa starfað með fjölmörgum öðrum leikhópum og leikið í útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum. Þá hefur hann þýtt nokkur erlend leikrit.

í leit að því sem er (2026) er fimmta frumsamda bók Sigurðar. Áður sendi hann frá sér ljóðabækurnar margbrotinn augasteinn (1981), ævinlega hér (1996), á leiðinni (2004), heim aftur (2015).

Sigurður hefur einnig þýtt nokkrar bækur um andlegt líf, síðast Ný jörð – að vakna til vitundar um tilgang lífs þíns (2023) eftir Eckhart Tolle.

(Frekari upplýsingar um Sigurð má finna á vefsíðunni icelandicart.is)