Efni
Árið er 1949. Ingmar Bergman, 31 árs gamall og fimm barna faðir, fer til Suður-Frakklands að skrifa kvikmyndahandrit. Það veldur uppnámi í hjónabandinu. Í sólinni fer handrit hans að fjalla að verulegu leyti um þetta stormasama hjónaband þar sem höfundurinn gerir frekar lítið úr sjálfum sér en hefur eiginkonuna í dýrlingatölu.